Innskráning í Karellen
news

Sjálfstæðilotan

05. 10. 2020

Nú er lota 2 í kynjanámskrá Hjallastefnunnar, eða sjálfstæðilotan, hafin hér á Hraunborg. Sjálfstæðilotan er fyrsta stig einstaklingsþjálfunar og fer hún fram í október og nóvember. Lykilhugtök hennar eru sjálfstyrking, sjálfstraust, öryggi og tjáning. Uppskeruvikan er tjáningarvika.

Um sjálfstæðilotuna:

Athygli og hvatning til allra er kjarni þessarar lotu. Kennarar leggja sig fram við að nálgast hvern og einn nemanda og sannfæra bæði nemandann og fjölskylduna um óendanlegan vilja skólans til að hafa þennan einstakling í fyrsta sæti! Verkefni tengd fjölskyldum eru frábær, fregnir að heiman mikilvægar og snjallt er að þau komi með hlut að heiman til að segja hinum frá. Skemmtilegt boð á kjarnakvöld eða ömmu- og afaheimsóknir eru snjallræði og fjölskyldumorgunn á að vera í þessari lotu. Framsagnaræfingar eru góðar og þjálfun í að tjá tilfinningar er mikilvægur þáttur; t.d. að ræða um hvernig þeim líður þegar þau koma í skólann, teikna myndir og ræða um það sem er best í skólanum eða hvenær þeim líður illa og hvað hægt sé að gera í því. Beinar æfingar í jákvæðri tjáningu um sjálfa/n sig er frábært.

© 2016 - Karellen