Innskráning í Karellen
news

Nýtt skólaár hafið

25. 08. 2017

Nú er nýtt skólaár gengið í garð hjá leikskólanum Hraunborg og strax liðnar um tvær vikur frá því að leikskólinn opnaði eftir yndislegt sumarfrí. Skólaárið okkar hefur byrjað vel og gefur vísbendingu um góðan og skemmtilegan vetur framundan. Það er ánægjulegt að segja frá því að til viðbótar við þann myndarlega kennarahóp sem starfar við leikskólan Hraunborg hefur enn einn snillingurinn bæst við, en það er hún Þórhildur okkar. Þórhildur hefur starfað með börnum í mörg ár og er algjör reynslubolti þegar kemur að kennslu yngri barna. Hún hefur ákveðið að slást í hópinn með okkur í vetur og við bjóðum hana innilega velkomna.

© 2016 - Karellen