Í vikunni gerðumst við á Hraunborg svo heppin að fá að fara á Lubbanámskeyð í Búðardal. Námskeyðið var haldið i grunnskólanum í Búðardal og var þátttaka okkar að miklu leyti í boði foreldranna hérna á Bifröst þar sem þau gerðust svo yndisleg að sækja börnin aðeins fyrr yfir daginn svo að við kæmumst á námskeyðið. Þetta er lifandi dæmi um frábæra samvinnu á milli foreldra og leikskóla og við þökkum kærlega fyrir okkur.