Innskráning í Karellen
news

Foreldrakaffi á Hraunborg

19. 10. 2017

Á fimmtudeginum 19. október héldu börnin á Hraunborg upp á aldeilis vel heppnað foreldrakaffi. Undirbúningur hófst á deginum áður en þá voru börnin önnum kafin við bakstur og bollugerð. Börnin nutu sín vel og var foreldrum síðan boðið upp á bollur og kaffi í morgunsárið. Dagurinn heppnaðist vel og vorum við á Hraunborg mjög ánægð með gjörninginn.

© 2016 - Karellen