Innskráning í Karellen
news

Agalotan

31. 08. 2020

Nú er fyrsta lotan í kynjanámskránni okkar hafin. Börnunum okkar gengur vel að fara eftir reglum skólans og öllum líður vel í örygginu sem sterkur og stöðugur rammi veitir okkur. Við kennararnir í Hraunborg reynum að vinna öll í takt, sýna hlýju, virðingu og jákvæða athygli. Neikvæð hegðun er hunsuð ef hægt er og inniröddin er notuð. Öll erum við tilbúin að hrósa þegar að vel gengur.

Um agalotuna:

-Agalotan er fyrsta stig félagsþjálfunar og fer fram í ágúst-september.

-Lykilhugtök lotunnar eru: virðing, hegðun, kurteisi, framkoma.

-Uppskeruvikan er framkomuvika.

R-reglurnar eru í hávegum hafðar í Hjallastefnustarfi; röð, regla og rútína í fyrirrúmi á öllum sviðum. Kjarnað umhverfi alls staðar, allir hlutir merktir, umferðarreglur merktar og sýnilegt og áþreifanlegt hvernig allt á að vera. Þaulhugsuð dagskrá og einfaldleiki í öllu skipulagi er jafnmikilvægt og umhverfiskjörnunin. Í kjarnastarfinu er síðan áherslan á skarpa nemendastjórnun með nákvæmri eftirfylgd og hegðunarreglum sem börnin taka þátt í að móta, kynna og endurskoða. Þjálfun í kurteisi og mannasiðum, æfing í að heilsast og kveðjast, borðsiðir og umgengni um fataklefa eru raunveruleikatengd verkefni í þessari lotu. Framkomuhæfni í kynjablöndun þarf að æfa sérstaklega. En almennt séð; því ekki að tala um hegðunarfræði og jafnvel gefa einkunn fyrir frammistöðu!!! Munum að æfa okkur líka því árangur barnanna ræðst af þeim aga sem við náum að sýna, til dæmis varðandi frágang, kyrrlátar raðir milli staða, stundvísi of.l.

© 2016 - Karellen